Hæhæ;)

Njóttu lífsins

17.04.2007 09:48:23 / lilja

úlalala I love you baby, úlalala love you to night

- Páskarnir voru skemmtilegir:lol:

- lá bara í leti..

- skruppum norður til Dalvíkur á skírdag og til baka á föstudaginn langa

- skruppum bara í matarboð til Hósu8|

- komum svo við heima hjá Elvari og borðuðum þar á föstudagskvöldið..

- Skólinn byrjaði

- nenni þessu ekki!

- Sigrún orðin 19 ára:haha:

- Afmælið geggjað skemmtilegt!

- Mikið hlegið og mikið dansað:D

- Kristján og Beggý komin frá Kúbu8)

- Beggý er sko svört!

- Ég hlakka til að fara til Tenerife8)

- Fór í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í laugardaginn með Kristjönu og mömmu

- Fór á risa stórt og rosa skemmtilegt trampólín:lol: hehe

- er að fara vinna á morgun á Broadway, Pendulum..

- fæ að vera á bar:lol:

- með henni Ernu minni:haha:

Hef ekkert meira að segja! þangað til seinna

Lilja - strax orðin kvíðin fyrir próf:$

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 11:55:32 / lilja

8. APRÍL

 

 

 

GLEÐILEGA

 

 PÁSKA

páskaegg

páskaungar


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 22:41:35 / lilja

Páskafrí og vitleysa..

- Fórum norður tuttugasta og e-ð mars og vorum þar yfir helgi

- rólegt föstudagskvöld en kíkt í partý og á barinn á laugardeginum.

- Í síðustu viku var mjög mikið að gera í skólanum, fleiri, fleiri próf og læti:o

- Aldís, Siggi, Elvar og ég kíktum á Klúbbinn á fimmtudaginn en það var engin stemming þar svo við stoppuðum stutt, þau fóru í pool og svo var bara rúllað heim.

- Elvar og Siggi voru nú ansi hressir í bílnum á leiðinni heim og vildu helst bara fara niður í bæ en ég var bílstjóri svo ég réð! :lol:

- á föstudaginn var svo lítið innflutningspartý hjá mömmu og Sigga.

- það var nú ekki mjög margir en þeir sem voru, voru sko skemmtilegir! :haha:

- held ég hafi ekki hlegið svona mikið LENGI!!

- fórum í ávaxtaleikinn og Gísli fór á kostum8|:haha:

- það var líka ansi hress bolla sem Siggi blandaði og allir ægilega kátir!!

- á laugardaginn gerðum við ekki neitt..

- Elvar var að vinna og svo þegar hann kom heim svaf hann bara og svaf allt kvöldið:S

- ég er svo bara búin að liggja í leti það sem af er liðið af þessari viku..

- og hjúkra Aldísi:D

- Er sko í páskafríi:haha:

- Elvar er að vinna á laugardaginn og mánudaginn svo ég veit ekki hvort við

förum nokkuð norður:S

- þarf líka að vera duglega að læra!

- við ætluðum til Tenerife 10.-24. júlí en erum svo búin að flýta ferðinni um viku eða frá 3. - 17. júlí vegna þess það er ættarmót sem mig langaði alls ekki að missa af!!

- það er fjölskyldan ömmu Unnar sem ég þekki ekkert en langar að kynnast! :D

- svo er líka annað ættarmót hjá afa fjölskyldu í júní:D

- það er alltaf á 5 ára fresti og síðast þegar það var hef ég verið 14... man svo vel eftir því að ég hugsaði þá.. vá næst þegar það verður ættarmót verð ég komin með bílpróf, má drekka og kannski komin með kærasta.. allt satt! :haha:

jæja nú er ég farin að bulla! ætla að fara og fá mér pringles og kók8)

síjú

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 23:00:26 / lilja

fréttir..

ég reyndi að hafa myndir hérna en þær vildu ekki sjást!! svo farið endilega inná tengilinn myndir og veljið ýmislegt.. þar getiði séð nýja hárið mitt:lol: Tinna klippti mig sem sagt í síðustu viku8|

Ég er orðin 19 ára:haha: afmælisdagurinn var skemmtilegur, ég bauð stelpunum í mat og svo skelltum við okkur á klúbbinn, vorum reyndar ekki eins hressar og fimmtudaginn þar áður en þetta var samt rosa fínt! stelpurnar komu með kórónur handa okkur öllum, svo við vorum kallaðar prinsessur allt kvöldið8) svo gisti sigrún hjá mér og það var voða gott að hafa einhvern hjá sér:lol: Elvar er sem sagt fyrir austan að vinna, fór á mánudaginn fyrir viku og kemur á fimmtudaginn:haha:

það styttist í páskafrí:D þarf reyndar að læra svoldið mikið í því:( Við erum að spá í að skreppa norður um helgina, erum ekkert búin að fara síðan þorrablótið var og mamma flutti.. það verður mjög skrítið að fara og vera ekket í varmahlíð!!:S

Fólk er bæði búið að vera deyja og börn að fæðast! Elvar er búin að eignast lítinn frænda:D en Tinna og Beggý voru ekki jafn heppnar því þær misstu báðar afa sinn núna með stuttu millibili...

Við Elvar erum að fara til Tenerife í Júlí:lol: Tinna og Ingimar o.fl. eru líka að fara en við verðum á sitthvoru hótelinu svo við verðum nú ekki alveg föst saman.. en mig hlakkar geggjað til! og Elvar fór að hlakka til þegar ég sagði honum að stærsta Go-kart braut í Evrópu væri þarna8) þetta verður stuð!

ég var að vinna síðasta laugardag og það var allt alveg crazy á Broadway! það voru sko 3 reknir út áður en maturinn byrjaði, bara af mínum bar, svo var ælt út um allt og það voru slagsmál!! svo kíkti ég aðeins niður í bæ eftir vinnu með Ernu, sem ég vinn með.. við kíktum á REX, hressó og Sólon. Var að fara í fyrsta skipti inná Sólon hehe..

ég held að þetta séu helstu fréttirnar.. en endilega commenta ef það er ennþá skoðað þessa síðu!

þanngað til seinna..


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 08:41:32 / lilja

7. mars

ég ákvað að reyna blogga smá.. reyndi það um daginn en allt datt út og ég var svo pirruð að ég nennti sko ekki að byrja upp á nýtt! Ég er bara í stærðfræði og hvar er Aldís??

síðustu helgi var skagfirðingakvöld á players:lol: það var svaka stuð! Bjarki kom á föstudaginn og fékk gistingu hjá okkur. Á laugardaginn komu Björn og Kidda og við fórum í sund, þar hittum við Tinnu, Andreu og Aldísi:) Síðan fóru Björn, Kidda, Bjarki, Elvar og ég á skauta:lol: ég var reyndar örugglega alveg hundleiðinleg því mig langaði bara heim og liggja upp í sófa og borða nammi:D en enginn vildi það með mér..:cry: en þetta var samt rosa fínt! við kíktum í skeifuna á KFC og siðan í BT og keyptum nýja sims leikinn:lol: ég veit ég er njölli!! en við fórum svo heim  í sims og borða nammi:haha: Björn og Kidda fóru þá á Akranes og við Elvar og Bjarki hengum bara heima.. kíktum aðeins á rúntinn með Jóel en hann var að fara fljúga út svo hann fór snemma heim og við líka8|

mamma er búin að koma sér ágætlega fyrir og eru allir velkomnir að kíkja í heimsókn! Við Elvar erum búin að vera þarna á hverju kvöldi í mat:lol: ægilega fínt!  Bjartur má meira að segja koma með8)

ég á afmæli eftir viku og einn dag:haha: þetta er samt frekar tilgangslaust afmæli, 19. ára.. ekkert.. :$ jújú ég nálgast þá tvítugt! Elvar er að fara austur á mánudaginn næsta og verður í 10 daga, náttúrulega á afmælinu mínu! :cry: En við stelpurnar höfum það bara kósý! ég ætla að bjóða þeim, ykkur!, í kökuboð eftir skóla á fimmtudaginn eftir viku! það verða heitir réttir, kökur (minnst 10 tegundir), bjór, Material girls og fullt af nammi:haha:

ég er að fara vinna núna um helgina á Broadway, hlakkar nú bara til! er sko búin að sakna fólksins þar!! :$

jæja held þetta sé nóg..! en kíkið endilega á http://borgarstelpur.bloggar.is/ stelpurnar eru mjög duglegar að bloggar þar;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 08:47:58 / lilja

15.febrúar

Af okkur er allt gott að frétta.. :lol: Mamma og Siggi eru búin að selja og kaupa sér íbúð hér í Reykjavík:lol: Við erum að fara norður í kvöld og hjálpa þeim að pakka og svo ætlar Elvar að keyra vörubílinn suður fyrir þau. Það verður svoldið skrítið að fara norður og vita að þetta verður í síðasta skipti sem við verðum á Birkimel 16:$ En það er samt fínt af hafa mömmu hérna hjá mér:lol: Siggi er búin að fá vinnu hjá jarðborunum og byrjar þar um miðjan mars:D svo nú er bara allt gjörbreytt hjá okkur..:o

Það er þorrablót á laugardaginn, sem verður reyndar svoldið öðruvísi en venjulega því að allir hreppirnir sameinast í íþróttahúsinu á króknum! heyrði að það væri búið að panta fyrir 950 manns.. svo þetta verður stuð! Hósa og co. koma öll og Eva og Gullý eru að fara í fyrsta skipti með okkur.. Við Elvar ætlum að stela Kristjönu og fara með hana norður:lol:

Við stelpurnar erum búnar að vera rosa duglegar að hittast:haha: ég missi reyndar alltaf af fimmtudagsdjamminu:cry:

við gellurnar

Síðustu helgi var haldið upp á áttræðis afmælið ömmu. Öll vikan á undan fór í að undirbúa, baka bollur og brauð og svo á laugardaginn fórum við og lögðum  á borð og gerðum salinn fallega bleikan8) það komu fullt af skemmtilegu fólki og ég hitti fullt af ættingjum sem ég þekki ekkert:lol: Kvöldið endaði skrautlega hjá mörgun:lol: hehe.. ég keyrði nú bara svo ég var slök8)

Lilja - hlakka til að fara norður!!:lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 13:25:07 / lilja

veikindi..

Ætli maður verði ekki að sýna smá lit hérna..:o ég fer alltaf inn á aðrar síður og bíð eftir að fólk bloggi en spái ekkert í að blogga hjá mér! Ég er búin að vera lasin í 3 daga, á ógesslega bátt:cry: hiti, kvef og hálsbólga og nú er ég í tíma og get ekki hætt að hósta! Mamma og Siggi eru líklega búin að selja húsið í varmahlíð og eru bara á fullu að skoða hérna í reykjavík.. Kristjana, litla sæta frænka, er komin til Íslands:lol: Krístján og Beggý eru búin að innrétta geggjað barnaherbergi, með skærbleikum ofni og vegg, koju með himnasæng og fleira krúttlegt! Algjört prinsessuherbergi, eins og öllum stelpum dreymir um! :$ Hún byrjaði aðeins á leikskólanum í gær, fór með mömmu og var í klukkutíma. ohh kennarinn ætlar að skipta um stofu..

bæbæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 11:23:56 / lilja

Þorrablót, íbúð..

hæ!!!!

Ég er glöð í dag:lol: Aldís og ég erum í stærðfræði og alveg komnar með ógeð svo við ætlum bara að leika okkur í tölvunni.. 8| erum sko í stæ313 (tölfræði):whut: Núna sit ég með símann í fanginu og bíð eftir að hann hringi.. ég er sveitt í lófunum og með fiðring í maganum:$ Við Elvar vorum sem sagt að bjóða í íbúð í gær og fáum svar í síðasta lagi í dag klukkan eitt.. shit hvað þetta er stressandi! Þetta er nefnilega fullkomið fyrir okkur! lítil íbúð, rosalega sæt og með garði fyrir hundinn og allt:D Svo annað hvort verð ég ógeðslega glöð á þorrablóti í kvöld eða alveg hundfúl!! :| Ég er búin í skólanum 12:40 og elvar í vinnunni 1 svo við ætlum að reyna fara sem fyrst norður:lol: Ég hlakka mjög til:haha: já þetta er nú það sem er að frétta.. í bili..

Lilja - glöð en kvíðin í senn:S


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 13:50:01 / lilja

11. janúar

- ég er i sálfræði

- ógeðslega leiðinlegt!!!:evil:

- get bara ekki haldið mér vakandi ef ég reyni að hlusta.. :o

- skólinn er rétt svo byrjaður og ég strax orðin ógeðslega pirruð og leið á þessu!

- annars er gott að frétta..

- ég og Aldís vorum duglegar og fórum í ræktina í gær:lol:

- ég var rosalega stolt af mér!

- síðan ætlum við á morgun í pumping iron með stjána bróðir og þar ætlar einhver kona að sýna okkur um og láta okkur hafa æfingarplön..

- Ég ætla að verða ógesslega flott!! ;)

- mamma er flutt suður! :D

- kom bara í gær og byrjaði að vinna hérna í dag..

- hún sem sagt sótti um starf hérna í reykjavík í íbúðalánasjóði í eitt ár..

- svo ætlar hún bara að sjá til hvað hún gerir..

- það verður æði að hafa hana!!!

- Ég er orðin ægilega spennt fyrir því að við Elvar kaupum okkur íbúð:)

- veit nú ekki hvað verður af því! hehe..

- ég og aldís ætlum að djamma á morgun:D

- okkur vantar bara einhvern til að redda okkur inn;)

- svo ætla ég norður þar næstu helgi

- vonandi á þorrablót.. ef við fáum miða! :$

er þetta ekki bara gott í bili?!! veit aldrei hvað ég á að segja.. en þetta eru helstu fréttirnar! :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 19:04:04 / lilja

Gleðileg jól!.. þótt sein sé..

já.. nú sit ég ein heima í varmahlið og bíð eftir að Elvar komi heim úr vinnunni! það va!r hringt klukkan 9 í morgun og hann beðinn um að koma.. :| ég er sammála aldísi með það að þetta eru búin að vera skrítinn jól, þau eru bara búin að líða áfram án þess maður taki nokkuð eftir því..! ég fékk nú fullt af fínum gjöfum og fór meira að segja í messu:lol: ég er búin að fara í 3 jólaboð og það er allavega 1 eftir8| en það er nú ekki slæmt! :D á jóladag fórum við í árlegu ferðina til Dalvíkur. Fengum góðan mat, gott vín og góðan félagsskap! kvöldið endaði náttúrulega með þvi, eins og venjulega, að sumir fóru í fílu, aðrir voru blekaðir og enn aðrir bara góðir (ÉG):lol: hehehe.. við sváfum á hóteli, mamma, siggi, Elvar og ég, það var frábært!:) já og besta jólagjöfin í ár voru fiskar, sem siggi fékk! hann fékk tvo gullfiska og eina ryksugu frá mömmu, ég kom sko ekkert nálægt því! hehe... þeir eru svo krúttlegir! í fyrradag fórum við á ball, Elvar kom reyndar frekar seint, var á einhverju bílskúrsspjalli við pabba sinn! það verður sko aldrei úrelt!! :lol: meðan var ég ein ráfandi um barinn en hitti nú hana Sigrúnu mína sem sá vel um mig:) Gærdagurinn fór aðallega í þynnku:( í gærkvöldi fór ég með mömmu að hjálpa henni að undirbúa jólaball í akrahreppi, og verð ég að segja að ég hef bara aldrei séð jafn ljótt og lítið jólatré!! fyrirgefiði en þetta er bara satt! ég gat bara ekki annað en hlegið! það voru altaf stór, alvöru jólatré þegar ég var lítil en núna.. uss og svei!

æji ég hef ekkert fleira að segja...bless!


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 13:28:52 / lilja

mánudagur..

Núna er ég bara heima, í Kópavoginum, að láta mér leiðast. Búin í prófunum og ekkert að vinna.. :lol: það er bara næs8) talandi um prófin þá hefur mér bara aldrei gengið svona vel:haha:!!! ég fékk tvær 9 og tvær 8 og svo 6 í ensku og reyndar bara 5 í íslensku.. en ég náði henni allavega:lol:

Helgin var rosa skemmtileg:lol: Aldís og Anna Lilja komu suður og við fórum í búðir, leigðum limmu og svona skemmtilegt!! :haha: Við rúntuðum um bæinn í tvo tíma og drukkum kampavín:lol:

ohh ég nenni ekki að gera neitt! þyrfti samt að laga til og fara í búðir og kaupa jólagjafir.. en ég ætla held ég bara að liggja í leti..


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 19:27:01 / lilja

jólaseríur:D

- ég er búin í 4 prófum:D

- á bara 1 eftir :haha:

- keypti 2 seríur

- og setti sjálf upp :D

- fór reyndar ekki alveg eins og ég var búin að sjá það fyrir mér:S

- keppti óggislega gott nammi áðan8)

- borðaði skyr

- og samloku með blönduðu grænmetis salati..

- já það er svona mikið að frétta:lol:

- uhh..

- Hafdís og Svavar eru í Köben

- og ég væri til í að vera með þeim:o

- Beggý útskrifast 20.desember

- Til hamingju með það:)

- Ég sakna Aldísar

- og Önnu:cry:

- ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar 

- og þrífa

- ljósaperurnar eru alltaf að springa:S

- ég tíndi hundakúk áðan

- mér leiðist

- nenni ekki að læra fyrir íslensku

- sem er á miðvikudaginn næsta

- amma spáði fyrir mér áðan

- og það mun einhver ungur strákur deyja!

- en ég held ekki að það verði neitt úr því frekar en venjulega:D

- ég er alltaf í náttbuxum

Á föstudaginn síðasta fórum við Elvar á tónleika með Rock star genginu og það var rosa gaman:haha: síðan eftir tónleikana kíktum við í vinnuna til Elvars því þar var partý og allir blindfullir!! einn gamall pólverji var búin að detta og fá gat á hausinn og svona skemmtilegt.. þannig við drifum okkur bara heim.. :lol: Á laugardaginn fórum við svo í kringluna:) og keyptum föt:haha: Það var rosa gaman:D:D:D en kringluferðin endaði með stoppi í Vínbúðinni og síðan var haldið heim og gert sig kláran! Við fórum svo um hálf 7 heim til Örvars, vinnufélaga Elvars og fengum okkur bjór þar. Síðan var haldið á Broadway á árshátíð.. það var kampavín og hvítvín með matnum og svo kom líka fyndinn töframaður:lol: Svo var bara skellt sér á ballið og dansað eins og brjálæðingur og ég held ég hafi bara verið hressust þarna:D það er svo fyndið þegar ég byrja að segja Elvari að nú skuli hann ekki drekka meira því hann sé mátulegur þá gleymi ég alltaf að passa sjálfa mig og verð alveg svakaleg á meðan Elvar er hálf edrú.. hehe.. æji það er nú bara gaman að því.. :) já við héldum síðan heim um 3 þegar ég áttaði mig á því að ég þyrfti að læra fyrir próf daginn eftir:S en það reddaðist bara allt held ég:D Næstu helgi verð ég að vinna.. svo.. já..

Lilja- hundleiðist!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 12:28:49 / lilja

.....

jæja ætli það sé ekki kominn tími til að blogga.. fyrst það ætla ekki fleiri að segja skoðun sína á mér.. uhh.. það er frekar lítið að frétta sko.. prófin að byrja og jólin að koma! Ég fer í þýsku próf á morgun og er á fullu að læra fyrir það, ég ætla að fá 10!! :) nei kannski bara 6.. það er mín tala:) Annars á dagurinn í dag ekkert sérstaklega skemmtilegar minningar.. það eru 6 ár síðan pabbi dó.. ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða! En svona er það nú bara.. Á morgun er ég að fara á tónleika með Rock star liðinu:) hlakka geggjað til! hef btw aldrei farið á tónleika áður!! :lol: Við Elvar byrjum á að fara í vinnuna til hans klukkan 6 og þá á e-ð að fá sér bjór og svona.. og svo eru tónleikarnir klukkan 8:haha: Síðan á laugardagskvöldið er árshátíð hjá vinnunni hans Elvars á Broadway.. þá verður eflaust mikið drukkið:S já.. svo það er ekki beint mikill tími til að læra:S En það hlýtur nú að reddast! en já svo þurfum við líka að fara til ömmu á sunnudaginn og setja upp seríu á svalirnar og hún ætlaði að bjóða okkur í mat líka.. ohh ég held ég verði bara að fresta öllum prófunum!! haha.. ÉG er búin í prófunum þann 13.des og þá þarf ég að hanga fyrir sunnan þangað til 21.des:whut: hver bíður sig fram í að skemmta mér??!!:lol: annars þarf ég nú að gera jólahreingerningu og kaupa jólagjafir og jólakjól:haha: Ég man ekki hvort ég var búin að segja það en ég er byrjuð að vinna á Broadway:) það gengur bara rosa vel! Ég og Kristján erum bæði að vinna þar, það er fínt því þá getum við hist:lol: Elvari finnst þetta nú ekki skemmtilegasti vinnutími sem til er.. vinn bara um helgar og frá 6 til jaa bara þangað til allt er búið á mínu svæði! var til 3 eina nóttina en svo bara 1 hina svo þetta er mjög óútreiknanlegt.. Ég hlakka rosalega til jólanna!! að fara á þorláksmessu í Víðiholt, á aðfangadag verð ég heima:lol: og svo á jóladag förum við líklega til Dalvíkur! StuðStuð!! Anna það er æðislegt að horfa á myndina af ykkur Elvari nöktum þegar ég læri:haha: og Bjarki þú ert líka sætur! já.. ætli það sé ekki best að fara að læra svo ég nái þessu nú:!: Lilja - ánægð með lífið:haha:

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 13:50:01 / lilja

jæja hvað veistu um mig?

1. Nafn þitt? 
2. Hvar kynntumst við? 
3. Hvað er miðnafnið mitt? 
4. Hefurðu hitt mig? 
5. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er? 
6. Hversu lengi hefurðu þekkt mig? 
7. Hversu vel þekkiru mig? 
8. Reyki ég? 
9. Trúi ég á Guð? 
10. Hvað Hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig? 
11. Aldur minn? 
12. Afmælisdagur? 
13. Háralitur? 
14. Augnlitur? 
15. Á ég systkini? 
16. Hefuru nokkru sinni öfundað mig? 
17. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera? 
18. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig? 
19. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á? 
20. Hver er minn besti eiginleiki? 
21. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn? 
22. Er ég fyndin/nn? 
23. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum? 
24. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika? 
25. Spila ég á e-ð hljóðfæri? 
26. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera? 
27. Höfum við kysst? 
28. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni? 
29. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 
30. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 
31. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman? 
32. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni? 
33. Hvaða vin held ég mest uppá? 
34. Hef ég hjálpað þér? 
35. Hefur þú hjálpað mér? 
36. Þykir þér vænt um mig? 
37. Er ég sannur vinur? 
38. Elskarðu mig? 
39. Langar þig að faðma mig? 
40. Langar þig að kyssa mig?
Koma svo, svara!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4